Leita í fréttum mbl.is
Embla

Slagorð mitt í baráttunni er:

 

Viljirðu breytingu,

verður ÞÚ að vera

breytingin. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Indriði H. Indriðason

Ég vil vekja athygli á vefsíðu, www.profkjor.politicaldata.org, sem er nýstofnsett. Tilgangur vefsíðunnar er að skapa vettvang þar sem kjósendur geta nálgast upplýsingar um frambjóðendur og stefnumál þeirra auk annarra upplýsinga tengdum prófkjörunum/forvölunum. Vefsíðan er opin frambjóðendum allra flokka í öllum kjördæmum en það er undir frambjóðendunum sjálfum komið að færa inn upplýsingar um sig og stefnumál sín. Ef frambjóðendur kjósa eru færslur af þeirra eigin bloggum birtar sjálfkrafa á vefsíðunni. Það gefur t.d. kjósendum möguleika á að skoða bloggfærslur allra frambjóðenda flokksins í tilteknu kjördæmi – og jafnvel takmarkað við tiltekið sæti á listanum – á einum stað. Það er von okkar að vefsíðan efli pólitíska umræðu og gefi kjósendum aukið færi á að taka málefnalega afstöðu.

Frambjóðendur geta skráð sig hér: http://www.profkjor.politicaldata.org/wp-login.php?action=register

Indriði H. Indriðason, 3.3.2009 kl. 02:18

2 Smámynd: Héðinn Björnsson

Þú komst ekki á kynningarfundinn í fyrradag og væri því gott ef þú gætir sagt aðeins meira hvaða hugmyndir þú hefur um t.d. hvernig eigi að:

  • stýra bönkunum og öðrum fyrirtækjum sem í gegnum bankana komast í ríkisforsjá á komandi mánuðum,
  • forða gjaldfalli í húsnæðiskerfinu,
  • bregðast við kröfu AGS um 100 milljarða niðurskurði í fjárlögum fyrir 2010,
  • haga uppgjöri við auðmennina sem settu landið á hausinn,
  • halda friðinn í samfélaginu og forða borgarastríði,
  • auka lýðræðið í landinu og virkja fólk til þátttöku í samfélaginu sínu.
Verkefnin framundan eru stórkostleg og þeir sem bjóða sig fram verða að vera "konkret" í hvaða hugmyndir þeir hafa um hvernig skuli brugðist við.

Héðinn Björnsson, 3.3.2009 kl. 11:53

3 Smámynd: René Biasone

Sæll Héðinn, takk fyrir spurningarnar. 

Ef við viljum komast úr þessari kreppu sem fyrst, eigum við að upplýsa og skilja vel orsakir kreppunnar. Við eigum að leita að og finna peningana sem hefur verið eytt og líklega faldir af bönkunum þremur sem urðu gjaldþrota og af öðrum fyrirtækjum.Þar sem mest af  þessum peningum eru erlendis (t.d. í svokölluðum skattaparadísum), eigum við leita að hjálp og samvinnu við Interpol og saksóknara annarra Evrópuríkja til að finna út hvert peningarnir fóru og hvaða einstaklingar og fyrirtæki bera þannig ábyrgð á þessum glæp. Markmiðið er að finna endanlega sökudólga og lögsækja þá. Í sambandi við bankana, finnst mér að það sem Gylfi Magnússon er að gera núna sé mjög gott, sem sagt að auka gagnsæi í íslensku viðskiptalífi og auka trúverðugleika á fjármálamörkuðunum. “Forða gjaldfalli í húsnæðiskerfinu”: 4000 íbúðir eru tómar og úthverfi Reykjavíkur hálf byggð. Þetta er afleiðing af offramboði af byggingalóðum. Þetta eru meginorsakir kreppu fasteingarmarkaðarins. Rikisstjórnin á að: 1) Koma í veg fyrir meira lóðaframboð á höfuðborgarsvæðinu næsta áratug. Sveitafélög á höfuðborgarsvæðinu eiga frekar að: 2) Einbeita sér að því að endurskipuleggja núverandi svæði í stað þess að stækka þau. Þessir þveir þættir munu auka verðmæti fasteigna bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni (en þetta mun gerast eftir verðfallið sem er því miður óhjákvæmilegt – og við eigum Sjálfstæðisflokknum að “þakka”!). Persónulega tel ég að við ættum að reyna að losna við AGS lánið (og meðfylgjandi kröfur) sem fyrst. AGS lán er hugsað fyrst og fremst til að endurlífga íslensku krónuna sem áratugs peninagamálastefna Sjálfstæðisflokksins var að myrða. En, því miður, eina leiðin til að losna við AGS lán er að taka upp tvöfalt myntkerfi. 

Til að “halda friðinn í samfélaginu og forða borgarastríði” ætti að vera nóg að ný ríkisstjórn vinni traust borgaranna dag eftir dag með ákvörðunum sínum sem eiga að byggjast á réttlæti og sanngirni.

René Biasone, 3.3.2009 kl. 21:04

4 Smámynd: Héðinn Björnsson

Styður þú að bankarnir og fyrirtækin sem þangað lenda vegna vanskila sé einkavædd eftir því módeli sem notað var við Morgunblaðssöluna?

Héðinn Björnsson, 4.3.2009 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Frambjóðandi

René Biasone
René Biasone
René Biasone, háskólanemi og rannsóknarmaður við HÍ, og Stuðningsfulltrúi.

Bloggvinir

Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband