Réttlæti og Grunngildi
14.10.2010 | 15:20
Ég býð mig fram til setu á Stjórnlagaþingi því ég óska þess að ný stjórnarskrá lýðveldisins Íslands muni tryggja:
- lýðræði, jafnrétti og borgararétt.
- að sjálfstæði og fullkomin skil séu milli löggjafar- , framkvæmdar- og dómsvalds.
- gegnsætt ríkisvald og nýjar reglur um þjóðaratkvæðagreiðslur.
- að stjórnmál séu frjáls frá efnahagsvaldi og að þau hafi ekki áhrif á fjölmiðla.
- frjálst viðskiptafrumkvæði, sem fer ekki fram gegn almannahagsmunum, öryggi, frelsi og mannvirðingu.
- að auðlindir Íslands séu í eigu íslensku þjóðarinnar og að sjálfbær nýting þeirra sé höfð að leiðarljósi þannig að komandi kynslóðir geti einnig nýtt sér þær.
- meira réttlæti og að stjórnvöld og borgarar sýni samfélagslega ábyrgð.
- aukna samhygð og vernd gagnvart viðkvæmum hópum í samfélaginu.
- vernd og virðingu gagnvart umhverfi og náttúru.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.10.2010 kl. 11:38 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.